Um okkur

Lára Margrét heiti ég og er eigandi Skreytingaþjónustunnar. Að skreyta og gera fallegt er mitt áhugamál og nýt ég þess að geta starfað við það sem ég elska að gera. Að fá að taka þátt í mikilvægustu dögum fólks er ómetanlegt. En ég get ekki gert alla hluti ein og er ég svo ótrúlega heppin að eiga góða fjölskyldu og vini að sem eru alltaf tilbúin að hjálpa mér í öllu brasinu mínu sem er það skemmtilegasta sem ég geri. Eldri stelpan mín Særún er komin á fullt í þetta með mér og sú yngri hún Magga er í stöðugri þjálfun. Að sjálfsögðu sleppur maðurinn minn ekki og fær að sjá um seríu málin okkar.

Hugmyndin kviknaði við eldhúsborðið heima í janúar 2018 að nýta allt dótið sem ég væri búin að safna að mér og aðstoða aðra við að skreyta. Því þetta er það sem ég elska að gera og fólk hefur kannski ekki alltaf tíma að hugsa um skreytingar fyrir veislur. Ég ákvað því að prófa að leigja út nammibari og makkarónustanda og þróaði leiguna svo eftir eftirspurn og hér erum við í dag! Með stóran lager af leiguvörum og aðstoðum fólk að losna við hausverkin við skreytingarnar. Markmiðið okkar hjá Skreytingaþjónustunni er og hefur alltaf verið að auðvelda fólki að halda veislur og minnka allt stress og umstang sem því fylgir.

Við erum sanngjörn í verðum, reynum að hafa kostnaðinn í algjöru lágmarki og náum því með því að þrífa allt sjálf hvort sem það er að þvo vasa eða öll sætacoverin sem við eigum. Einnig reynum að hafa mjög gott úrval af leiguvörum, þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 

Aðalástæða þess að við fórum út í að leigja vörur út fyrir veislur er að það þurfa ekki allir að eiga allt. Allir hlutir kosta og taka pláss. Svo ekki sé talað um hversu umhverfisvænt það er að endurnýta hlutina með því að fá þá leigða og skila þeim síðan aftur. Ekki má gleyma heldur tímanum að selja allt aftur á Facebook.

Allar veislur eru mikilvægar hvort sem það er brúðkaup, fermingar, árshátíðir, skírnir eða afmæli og eiga skilið að vera fallega skreytt. Við hlökkum til að heyra frá ykkur og aðstoða ykkur að gera þinn viðburð að drauma viðburð!